Gengið í björg - Eggert Pétursson & Helgi Þorgils Friðjónsson
Árið 2005 sýndu Eggert Pétursson (f. 1956) og Helgi Þorgils Friðjónsson (f. 1953) saman í Salzburg í Austurríki. Þá kviknaði sú hugmynd að þeir myndu vinna saman verk þar sem þeir teiknuðu og máluðu inn í verk hvors annars. Næstu ár héldu þeir þessu áfram og vorið 2016 sýndu þeir afraksturinn í Listasafni ASÍ við Freyjugötu. Þessi verk voru síðan gefin út í bók sem ber vitni sköpunargleði þeirra og vináttu.