Way Over - Seven Conversations With Icelandic Artists
Til að kynna betur fyrir alþjóðlegum viðtakendum hvað íslenskir myndlistarmenn á ýmsum aldri eru að fást við gaf Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar út bókina Way Over - Seven Conversations with Icelandic Artists árið 2016.
Way Over fjallar um listamenn sem vinna á fjölbreytilegan hátt með ýmsa miðla og hafa ýmist verið mjög stórtækir í sýningarhaldi eða eru að stíga sín fyrstu skref.
Ritstjóri bókarinnar er Klara Þórhallsdóttir og tekur hún viðtöl við listamennina sem sumir unnu verk sérstaklega fyrir þessa útgáfu. Þeir skýra út forsendur vinnu sinnar, fjalla um sín nýjustu verk og hvert þeir stefna.
Listamennrnir sem fjallað er um í bókinni eru:
Egill Sæbjörnsson
Libia Castro og Ólafur Ólafsson
Guðlaug Mía Eyþórsdóttir
Styrmir Örn Guðmundsson
Katrín Agnes Klar
Ingibjörg Jónsdóttir
Ívar Valgarðsson