Nína S.

https://artbook.is/web/image/product.template/871/image_1920?unique=fbce91e

6.990 kr 6990.0 ISK 6.990 kr

6.297 kr

Not Available For Sale

    Þessi samsetning er ekki til.

    Skilmálar og skilyrði
    30 daga peningaábyrgð
    Sending: 2-3 virkir dagar

    Um 1930 var Nína Sæmundsson þekktasti myndlistarmaður Íslendinga á alþjóðavettvangi. Hún hafði numið og starfað í Kaupmannahöfn, Róm, París og New York. Verk hennar höfðu verið sýnd og hlotið viðurkenningar í Danmörku, Frakklandi og Bandaríkjunum og heima á Íslandi var styttan Móðurást fyrsta höggmynd konu sem sett var upp á almannafæri.

    Nína fæddist í Nikulásarhúsum í Fljótshlíð, næsta bæ við Hlíðarenda, árið 1892 og ólst þar upp. Hún var barn fátækra foreldra og naut lítillar formlegrar menntunar en hafði fyrir augum öll sín bernskuár eina stórbrotnustu náttúrusýn Íslands. Lífsstefna hennar var óráðin fram undir tvítugt þegar hún fór til Kaupmannahafnar. Þar hóf hún nám í höggmyndagerð við Listaakademíuna og varð afburðanemandi.

    Hún var hluti af einni merkustu kynslóð danskrar höggmyndasögu og verk hennar vöktu strax athygli. Líf hennar tók hins vegar nýja stefnu þegar hún veiktist af berklum og varð að draga sig í hlé á heilsuhæli í svissnesku Ölpunum. 

    Hrafnhildur Schram segir viðburðaríka sögu einnar helstu listakonu Íslendinga á tuttugustu öld. Ferill Nínu Sæmundsson var viðburðaríkur og óvenjulegur og þrátt fyrir langa starfsævi erlendis, ekki síst í Bandaríkjunum, fyrst í New York og síðar í Los Angeles, voru viðtökur við verkum hennar vægast sagt óvægnar þegar hún flutti aftur til Íslands stuttu eftir seinna stríð. En í ljósi nýrrar sýnar á listasöguna og þátttöku kvenna og hingsegin fólks í henni blasir lífsverk Nínu nú við í öðru ljósi.