My Mother`s Dream

https://artbook.is/web/image/product.template/1056/image_1920?unique=fbce91e

3,500 kr 3500.0 ISK 3,500 kr

3,153 kr

Not Available For Sale

    This combination does not exist.

    Terms and Conditions
    30-day money-back guarantee
    Shipping: 2-3 Business Days

    My Mother’s Dream / My Dream er bókverk eftir Erlu S. Haraldsdóttur sem gefið er út í tilefni af einkasýningu hennar í Norrtälje Konsthall í Svíþjóð. Í bókinni er birtur draumur sem langamma hennar skráði þegar hún var unglingur. Frumritið er sýnt en auk þess eru birtar þýðingar á draumnum yfir á ensku, sænsku, þýsku og suðurafríska tungumálið IsiNdebele. Sé bókinni snúið við eru í henni auðar línur þar sem eigandi bókarinnar getur skráð sinn eða sína eigin drauma - og þannig haldið við þeim sið að skrá drauma sína.

    Erla S. Haraldsdóttir hefur á undanförnum árum sýnt röð málverka þar sem föðurfjölskylda hennar er til umfjöllunar. Þetta eru verkaraðirnar Genesis, sem sýnd var í Konstepidemien í Gautaborg 2016, og Fjölskyldumynstur, sýning sem haldin var í Listasafni Reykjanesbæjar árið 2019. Í verkinu Draumur móður minnar dýpkar Erla framsetningu sína á ættingjum sínum og ættarsögu. Hún deilir með viðtakandanum samskiptum langömmu sinnar, Svanhildar, við huldufólk, sögu sem er í senn persónuleg og tjáir um leið viðfangsefni sem var svo ótalmörgum hugstætt á Íslandi undir lok 19. aldar.